07nóvember
Hvað vil ég horfa á?
Eitthvað gamalt og gott
með skott
scott Bakula
að leika drakula
28október
Hvaða áhrif ætli það hefði á prófkjörsbaráttu Sjálfstæðisflokksins ef Birni Bjarnasyni yrði rænt af nokkrum róttæklingum sem krefðust þess að
Guðjón Hjörleifsson yrði settur í formannsstól flokksins.
16október
Nú rétt í þessu var ég að ljúka við að horfa á fimmtu myndina í Death Wish seríuni. Eins og í hinum fjórum myndunum fer Charles Bronson með hlutverk Paul Kersey, hins réttláta riddara götunar sem eins og fyrri daginn er í krossferð gegn glæpamönnum og illþýði. Mynd þessi er frá árinu 1993 og var hún sú síðasta í Death wish seríuni. Seint verður sagt að Death wish 5 sé besta mynd sem Bronson lék í. Auðsjáanlegt er að karlinn er orðinn að krumpuðu gamalmenni þegar myndin er gerð og finnst manni það því varla passa að láta hann vera hlaupandi um með skammbyssu á eftir vondum köllum. Fyrsta Death wish myndin fannst mér vera hin fínasta afþreyging og vel heppnuð testosterón ræma. Árið 1993 mátti Bronson hins vegar muna fífil sinn fegri og stendur hún og fellur með því. Death wish 5 er að mér finnst, frekar slæm mynd, en hún er alls ekki laus við afþreygingargildi, allavega þótti mér prýðilegt að byrja þennan ágæta mánudag á að renna henni í gegn. Charles Bronson með byssu er næg ástæða til að horfa á hvaða vitleysu sem er, þótt hann sé orðin gamall og hrumur.
15október
Ég er núna að hlusta á plötuna Haven með Dark Tranquillity, sem er algjör eðall og mikil sunnudagsplata...
12október
Nei, mér er andskotans sama hvað þessi maður gerir eða segir... ef ég hitti hann á förnum vegi mun ég aðeins bjóða honum góðan daginn á móðurmáli hans.
12október
Á okkar litlu og vindasömu eyju er staddur rússneski gagnbyltingarmaðurinn Mikhail Gorbatsjov en erindi hans hingað er fyrirlestur sem hann ætlar að halda í Háskólabíói á morgun. Gagnbyltingarsinnin blettótti kom til íslands í dag með einkþotu auðmannsins Björgólfs Thors Björgólfssonar og hefur hann vafalaust notið þeirrar flugferðar. Á morgun mun hann síðan snæða vel útilátinn hádeigisverð með íhaldskurfi þeim er nú situr í borgarstjórnarstól á kostnað okkar útsvarsgreiðenda... verði þeim að góðu. Ef ég hitti Gorbatsjov mun ég bjóða hann velkominn til landsins, en einnig fara fram á að hann biðji þær milljónir manns í lýðveldum fyrrum sovétríkjanna, sem nú lifa við hungurmörk og atvinnuleysi útaf "umbótastarfi" hans á níunda áratugnum, afsökunar á misgjörðum sínum.
06október
Mikið djöfull öfunda ég ekki fólkið sem er að fara að detta í það í kvöld. Það á eftir að verða svo leiðinlegt hjá ykkur meðan það verður gaman hjá mér. Ég er að fara á næturvakt liggaliggalái!
26september
Skúli segir, látið ykkur vaxa hreðjar, ræktið bringuhárin og hlustið á Manowar.
23september
Já lesandi góður, ástarljóð til þín ég yrki í sandinn. ó er ekki tilveran dásamleg?
21september
Oft gleymist það hjá mér að ég haldi út bloggi. Nú jæja... ljái mér hver sem vill. Í dag var ég í fríi frá vinnu, og hvernig nýtti ég frídaginn? Nú, eins og vinnandi manni ber, þ.e. gera sem allra minnst og fara helst ekki út úr húsi. Hver ætlar svo sem að segja mér að horfa á Futurama þátt á eftir Futurama þætti sé slæm nýting á degi sem þessum?